Þingmenn gerast talsmenn barna

0
445

talsmenn

20.nóvember 2014. Hópur Alþingismanna setti í dag upp barnagleraugu til að sjá með augum barna og hét því í yfirlýsingu að gerast ,,talsmenn barna á þingi.“ 

Afmælishátíð í tilefni 25 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fór fram í Laugalækjarskóla nú í morgun. Dagurinn hófst á því að ráðherrar, þingmenn og nemendur Laugalækjarskóla borðuðu morgunhafragrautinn saman en að því loknu setti innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hátíðina og lýsti afmælisár sáttmálans formlega hafið. ,,Við vildum setja afmælisathöfnina inn í umhverfi barnanna, í anda Barnasáttmálans og leggja þannig áherslu á að samfélagið aðlagi sig börnum og þeirra umhverfi, en gerum ekki ráð fyrir að börnin séu sett í umhverfi hinna fullorðnu,” segir Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi sem hefur ásamt UNICEF og Umboðsmanni barna skipulagt afmælishátíð Barnasáttmálans.

Á afmælishátíðinni undirritaði sérstakur hópur þingmanna yfirlýsingu um að gerast „Talsmenn barna á Alþingi“. Hópinn skipa þingmenn úr öllum flokkum sem hafa setið námskeið á vegum UNICEF, Barnaheilla og Umboðsmanns barna um Barnasáttmálann og notkun hans sem hagnýts verkfæris við ákvarðanatöku og stefnumótun. Þingmannahópinn skipa þau Elín Hirst (D), Karl Garðarsson (B), Valgerður Bjarnadóttir (S), Páll Valur Björnsson (A), Birgitta Jónsdóttir (Þ) og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (V). Við undirritunina settu þingmennirnir upp sérstök „barnagleraugu“ til að muna eftir að líta á málin frá sjónarhorni barna.

„Ég er stolt af því að tilheyra þessum hópi og mun framvegis setja upp barnagleraugun við úrvinnslu mála sem snerta börn og velferð þeirra,“ sagði Elín Hirst.  Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata tók í sama streng og beindi orðum sínum til barnanna á staðnum. „Þegar við mótum lög munum við hafa það í huga að þau hafa áhrif á ykkur, öll lög hafa áhrif á ykkur.“
Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi sagði undirritunina afar gleðilegan áfanga.
„Börn eiga sér oft fáa málsvara. Því er einstaklega ánægjulegt að sáttmálanum sé gert hátt undir höfði á þessum degi og að þverpólitískur hópur þingmanna heiti börnum og réttindum þeirra stuðningi sem mun hafa áhrif um allt samfélagið,“ sagði Bergsteinn.

Börn á fund ráðherra

Ráðherrar-og-ungmennin-að-fundi-loknumÁ þriðjudag var afmælisárinu þjófstartað því þá sátu fulltrúar úr ungmennaráðum Barnaheilla, UNICEF og umboðsmanns barna fund með ráðherraum ríkisstjórnarinnar  í Stjórnarráðinu.

 

Ein af grundvallarforsendum Barnasáttmálans, sem var lögfestur á Íslandi 20.febrúar 2013, er að í öllum málum er varða börn með einum eða öðrum hætti eigi þau rétt á að tjá sig og hafa áhrif. 

 

„Við erum sérfræðingar í að vera börn og erum þess vegna hæfust til að benda á hvað þarf að laga í málefnum sem tengjast okkur. Þess vegna á að hlusta á okkur, spyrja okkur og taka mark á því sem við segjum,“ sagði Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, 15 ára nemandi í Garðaskóla og fulltrúi ungmennaráðs UNICEF á fundinum. 

,,Þetta var góður og gagnlegur fundur. Ég tel það mjög æskilegt að ráðherrar, alþingsmenn og þeir sem starfa við stjórnmál hittu börn oftar og ræddu við þau um hvernig þau sjá hlutina. Það er gagnlegt fyrir stjórnmálamenn, ekki síður en börnin. Fáir eru til dæmis betur til þess fallnir að meta starfsemi skólanna en þeir sem eru þar alla daga,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, að fundi loknum. 

Heimild: www.unicef.is