Veröld átta milljarða

0
414
"Ef við brúum ekki ginnungagapið á milli þeirra sem lifa við örbirgð og þeirra sem búa við allsnægtir, er hætt við að spenna og tortryggni, kreppur og átök, einkenni heim átta milljarða manna," skrifar António Guterres. Mynd: Alex Block/Unsplash

Mannfjöldi. Ójöfnuður. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varar við því að spenna, tortryggni og átök kunni að verða viðvarandi í heiminum ef ekki takist að brúa bilið milli fátækra og snauðra. Hann bendir á að örfáir auðmenn eigi jafnmikið og snauðari helmningur mannkyns. Guterres skrifar kjallaragrein sem birtist í fjölmiðlum um allan heim í tilefni af því að um miðjan nóvember fer fjöldi jarðarbúa yfir átta milljarða. Á Íslandi birtist hún á Visir.is.

Veröld átta milljarða manna

-eftir António Guterres

António Guterres.
António Guterres. Mynd: UN Photo/Mark Garten

Jarðarbúar verða orðnir 8 milljarðar um miðjan nóvember, þökk sé vísindalegum framförum og bættri næringu, lýðheilsu og hreinlæti. En á meðan mannkyninu fjölgar setur sundrung í æ ríkari mæli mark sitt á heiminn.

Milljarðar manna berjast í bökkum; hundruð milljóna líða sult og jafnvel hungursneyð. Aldrei hafa fleiri flosnað upp frá heimkynnum sínum í von um betri tækifæri annars staðar og frið frá skuldum og vosbúð, styrjöldum og loftslagshamförum.

Ef við brúum ekki ginnungagapið á milli þeirra sem lifa við örbirgð og þeirra sem búa við allsnægtir, er hætt við að spenna og tortryggni, kreppur og átök, einkenni heim átta milljarða manna.

Auðmenn eiga jafnmikið og helmingur mannkyns

Staðreyndirnar tala sínu máli. Örfáir milljarðamæringar búa yfir jafnmiklum auðæfum og fátækari helmingur jarðarbúa. Ríkasta eina prósentið fær í sinn hlut fimmtung tekna heimsins. Fólk í ríkustu löndunum getur vænst þess að lifa þrjátíu árum lengur en íbúar hinna fátækustu. Eftir því sem velmegun og heilbrigði hefur aukist síðustu áratugi, hefur þessi ójöfnuður vaxið að sama skapi.

António Guterres ásamt Muhammad Shehbaz Sharif forsætisráðherra Pakistans á flóðasvæðum í landinu. UN Photo: Mark Garten

Til viðbótar þessari langtíma þróun, hafa sífellt hraðari loftslagsbreytingar og mishæg enduruppbygging eftir COVID-19 heimsfaraldurinn, verið olía á eld ójöfnuðar. Við stefnum beinustu leið til stórslyss í loftslagsmálum, enda eykst losun og hitastig á jörðinni óðfluga. Flóð, ofsaveður og þurrkar valda tjóni í ríkjum sem eiga nánast enga sök á hlýnun jarðar.

Stríðið í Úkraínu bætist ofan á matar-, orku og fjármálakreppu sem koma harðast niður á þróunarríkjum. Konur og stúlkur og jaðarsettir hópar, sem þegar sæta mismunun, bera þyngstu byrðarnar.

Gremjan nálgast suðupunkt

Mörg ríki á suðurhveli jarðar glíma við skuldabagga, aukna fátækt og sult, auk vaxandi áhrifa loftslagsbreytingar. Þau hafa litla möguleika á að fjárfesta í sjálfbærri endurreisn eftir heimsfaraldurinn; orkuskiptum eða menntun og þjálfun fyrir stafræna öld.

8 milljarðar
Mótmæli í Hong Kong. Mynd: Joseph Chan/Unsplash

Reiði og gremja í garð þróaðra ríkja er að nálgast suðupunkt.

Eitruð sundrung og skortur á trausti, valda töfum og flöskuhálsum í ýmsum málefnum; allt frá kjarnorku-afvopnun til hryðjuverka og lýðheilsu á heimsvísu. Við verðum að vinna bug á þessari hættulegu þróun, bæta samskipti og finna sameiginlegar lausnir á áskorunum.

Fyrsta skrefið er að viðurkenna að þessi hraðvaxandi ójöfnuður er val. Þróuð ríki bera ábyrgð á því að snúa af leið og geta hafist handa á Loftslagsráðstefnunnni í Egyptalandi og á fundi G20 ríkjanna á Bali.

Samstöðusáttmáli

Ég vona að sögulegur samstöðusáttmáli í loftslagsmálum líti dagsins ljós á COP27. Til þess að svo megi verða, þurfa þróuð hagkerfi og þau sem eru á uppleið að sameinast um stefnu og leggja sameiginlega til kunnáttu og auð í þágu mannkynsins. Auðugum ríkjum bera að veita ákveðnum hagkerfum á uppleið, fjárhagslega og tæknilega aðstoð til að greiða fyrir orkuskiptum, svo þau geti losnað við jarðefnaeldsneyti. Þetta er okkar eina von til að ná loftslagsmarkmiðum.

27
COP27

Ég hvet leiðtoga á COP27 til að samþykkja vegvísi og stofnanalegan ramma til að umbuna ríkjum á suðurhveli fyrir það tap og tjón sem þau verða nú þegar fyrir sökum loftslagsbreytinga.

G20 leiðtogafundurinn á Bali er tækifæri til að huga að örlögum þróunarríkja. Ég hef hvatt G20 hagkerfin til að samþykkja hvata-úrræði til þess að ríkisstjórnir suðurríkjanna fái úrræði fyrir fjárfestingar og lausafé til að losna undan skuldaklafa.

Á sama tíma og við vinnum að slíkum aðgerðum til meðal langst tíma, vinnum við af fullum krafti með öllum hlutaðeigandi að því að létta byrðar út af matvælakreppunni í heiminum.

Frumkvæðið um útflutning kornmetis frá Svartahafi er snarþáttur í þessari viðleitni. Þökk sé því, hefur tekist að koma á stöðugleika á mörkuðum og lækka verð. Hvert prósentubrot getur dregið úr hungri og bjargað mannslífum.

Rússneska áburðarins er þörf

Við vinnum að því að tryggja að rússneskur áburður komist á heimsmarkað að nýju, en útflutningur hefur raskast verulega vegna stríðsins. Áburðarverð hefur næstum þrefaldast frá því sem var fyrir heimsfaraldur. Hrísgrjónarækt hefur liðið mest, en hrísgrjón eru algengasta matvælategund heims.

Úkraína korn
Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fylgist með þegar skip leggur af stað til Úkraínu frá Istanbúl eftir að samkomulag náðist. UN Photo/Mark Garten

Af þeim sökum er brýnt fyrir matvælaöryggi heimsins að ryðja úr vegi síðustu hindrunum fyrir útflutningi rússnesks áburðar.

En þrátt fyrir allt þetta, eru nokkrar góðar fréttir.

Átta milljarða manna heimur getur skapað mögnuð tækifæri fyrir sum af fátækustu og fjölmennustu ríkjunum.

Hlutfallslega litlar fjárfestingar í heilsugæslu, menntun, jafnrétti kynjanna og sjálfbærri efnahagsþróun gætu skapað dygðuga hringrás þróunar og hagvaxtar, umskapað hagkerfi og líf fólksins.

Nóg handa öllum

Innan fárra áratuga gætu fátækustu ríkin í dag orðið aflvakar sjálfbærs, græns hagvaxtar og velmegunar í heilu heimshlutunum.

Ég veðja aldrei gegn hugvitsemi mannsins og hef mikla trú á mannlegri samstöðu. Á þessum erfiðu tímum skulum við hafa í huga orð eins skarpskyggnasta manns veraldarsögunnar, Mahatma Gandhi: „Í heiminum er nægur auður til að uppfylla þarfir allra, en ekki til að þjóna ræðgi þeirra.”

Alþjóðlegum fundum þessa mánaðar ber að nýta tækifæri til að leggja brýr og endurreisa traust, sem byggir á jafnrétti og frelsi hvers einasta hinna átta milljarða jarðarbúa.

Sjá einnig hér og hér.