Vesturbakki Jórdanar. Gasasvæðið. Palestínu-flóttamannahjálpin, UNRWA, hefur varað við því að mannúðarástand á vesturbakka Jórdanar hafi ekki verið verra frá árinu 1967. Það ár hernumdu Ísraelsmenn vesturbakann í svokölluðu sex daga stríði.
Philippe Lazzarini forstjóri UNRWA segir að ári eftir að hernaðaraðgerðir Ísraels, kallaðar Járveggurinn, hafi byrjað, hafi þrjátíu og þrjú þúsund manns verið verið flæmdar úr flóttamannabúðum á norðurhluta vesturbakkans.
Í færslu á samskiptamiðlinum X skrifaði Lazzarini að mannúðarkreppan á hinum hernumda vesturbakka hefði ekki verið dýpri frá 1967 vegna brottrekstra tuga þúsunda frá heimilum sínum. Hann sagði að ísraelskar hernámssveitir hafi eyðilegat stóra hluta flóttamannabúðanna og minnkað líkur á endurreisn þessara samfélaga.
Börn deyja á Gasasvæðinu
Tíu börn hafa dáið úr kulda á Gasasvæðinu frá vetrarbyrjun. 100 börn eru á meðal þeirra 490 sem fallið hafa fyrir vopnum Ísraels frá upphafi vopnahlésins á Gasa. Þetta þýðir að nærri eitt barn hefur verið drepið á hverjum frá því vopnahlé tók gildi. Einnig hafa palestínskir vígamenn drepið 4 ísraelska hermenn. Á vesturbakkanum er tala látinna í árásum landnema og hers frá því átök blossuðu upp á Gasa og breiddust út á bilinu 4-500.
Börn og fjölskyldur þeirra hafast við í tjöldum á meðan kuldi og regn herjar á Gasasvæðið. Tjöldin eru illa einangruð og veita takmarkað skjól. Vetrarveðrið, auk þrengsla og skorts á vatni og hreinlætisaðstöðu, auka mjög líkur á sjúkdómsfaröldrum.
Fæðuöryggi þó batnað
Þrátt fyrir allt hefur ástandið á Gasasvæðinu þó batnað frá því vopnahléi var lýst yfir í október. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Barnahjálpin (UNICEF) hafa flutt rúmlega 10 þúsund flutningabílafarma til Gasa frá 10.október og er það um 80% mannúðaraðstoðar. Enn hindra þó Ísraelsmenn hjálparstofnanir í að flytja inn það magn matvæla og annarrar aðstoðar sem nauðsynleg er talin.
Á þeim rúmu þremur mánuðum sem liðnir eru hefur „fæðuöryggi batnað og hungursneyð verið stöðvuð“, segir Ted Chaiban hjá UNICEF. Carl Skau hjá WFP segir að flestar fjölskyldur „borði að minnsta kosti einu sinni á dag…stundum tvisvar.” 43% íbúanna njóta matvælaaðstoðar í formi brauðmetis og mánaðarlega hveitiskammta, að sögn stofana Sameinuðu þjóðanna.
‘Skiptir máli’
UNICEF og samstarfsaðilar þeirra hafa komið 1.6 milljón manna til hjálpar með drykkjarvatni og útvegað 700 þúsund ábreiður og vetrarfatnað.
WFP útbýr 400 þúsund máltíðir á dag og sér 230 þúsund börnum í 250 bráðabirgðakennslustofum fyrir snarli.
Önnur mannúðarasamtök hafa útvegað tjöld, dýnur, og aðrar nauðsynjar og notið aðstoðar WFP við dreifingu.

