Sameinuðu þjóðirnar. Niðurskurður. Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa ekki greitt andvirði 1.6 milljarðs Bandaríkjadala í samningsbundnum aðildargjöldum til samtakanna. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að síðbúnar greiðslur aðildarríkjanna stæðu starfi þeirra verulega fyrir þrifum. Niðurskurður á útgjöldum dygði ekki til.
Bandaríkin, sem eiga að greiða um 20% útgjalda Sameinuðu þjóðanna, skulda nú samtals einn og hálfan milljarð dala og Rússland 72 milljónir. Kína borgaði framlag sitt í lok október. Aðeins 145 af 193 ríkjum hafa greitt gjöld sín nú þegar tæpur mánuður er eftir af árinu.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði á fundi svokallaðrar fimmtu nefndar (Fifth Committee) fjárlaganefndar allsherjarþingsins að samtökin stæðu frammi fyrir erfiðustu lausafjárstöðu sinni um árabil. Litlu breytir að gert er ráð fyrir miklum niðurskurði útgjalda á næsta fjárlagaári.
Í lok 2024 skorti 760 milljónir dala upp á að staðið hefði verið í skilum við samningsbundnar greiðslur aðildarríkja til Sameinuðu þjóðanna. Þessi skuld er að mestu ógreidd og við bætast 877 milljónir fyrir yfirstandi ár eða samtals nærri 1.6 milljarður dala.
„Lausafjárstæðan er erfið og mun verða það áfram jafnvel þótt niðurskurður verði samþykktur,“ sagði Guterres og sagði óásættanlegt að aðildarríkin greiddu ekki skuldir sínar við samtökin.
Mikill niðurskurður 2026
Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa nú til umfjöllunar fjárlagafrumvarp samtakanna fyrir næsta ár. Gert er ráð fyrir miklum niðurkurði í samræmi við svokallað UN80-frumkvæði. Það miðar að aukinni skilvirkni, nútímavæðingu og lægri kostnaði.
Í endurskoðuðu frumvarpi er gert ráð fyrir að útgjöld kjarnastarfseminnar 2026 3.238 milljörðum Bandaríkjadala. Það er niðurskurður upp á 577 milljónir dala eða 15.1% miðað við 2025. 2681 starf verður lagt niður sem er 18.8% fækkun.
Þessi niðurskurður til aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna bætast við mikinn niðurskurð til einstakra stofnana þeirra, svo sem Flóttamannahjálparinnar (UNHCR), Jafnréttisstofnunarinnar (UN WOMEN), Matvælaáætlunarinnar (WFP), Alnæmisstofnunarinnar (UNAIDS) og margra annarra.
