Góð þátttaka í appelsinugula-deginum

0
493

Telma ny

25. júlí 2012. Góð þátttaka er í átakinu Appelsínugula deginum en það er frumkvæði Sameinuðu þjóðanna til að vekja athygli á baráttunni til að uppræta ofbeldi gegn konum. Skorað er á fólk að klæðast appelsínugulu í dag 25. júlí, taka mynd af sér sem síðan eru settar á facebook.
Margir einstaklingar jafnt þekktir sem óþekktir hafa tekið áskoruninni og sent Upplýsingaskrifstofunni og UN Women á Íslandi myndir og má sjá nokkrar þeirra hér á síðunni og enn fleiri hér: https://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150932667325938.410155.93098810937&;type=1

Ljósmynd: Telma Tómasson fréttahaukur í appelsínugulu í góðum félagsskap!

Hvað getið þið gert?

1.    Klæðist appelsínugulu 25. júlí
2.    Skorað á aðra að vera í appelsínugulu, birta áskoranir á facebook og tweet
3.    Nota og deila ljósmyndina af UNiTE borðanum
4.    Breyta forsíðumyndinni á Facebook og setja í staðinn mynd af Say No – UniTE facebook-síðunni til að styðja Appelsínugula daginn.
Bakgrunnur:
UNiTE, herferð framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til höfuðs ofbeldi gegn konum og UN Women hafa tekið höndum saman og skora á alla að klæðast appelsínugulu 25. hvers mánaðar til að styðja þennan málstað. 25. nóvember er alþjóðadagur helgaður baráttunni á hendur ofbeldi gegn konum, en UNiTE herferðin hefur nú lýst 25. hvers mánaðar Appelsínugula daginn – baráttudag gegn þessum vágesti.

https://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150932667325938.410155.93098810937&;type=1
https://www.facebook.com/events/501034676577654/

https://www.facebook.com/SayNO.UNiTE
Appelsínugulir dagar verða haldnir fram að 57. þingi Ráðsins um stöðu kvenna í mars á næsta ári.