Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Costa Rica hefur tilnefnt Rebeca Grynspan sem frambjóðanda til stöðu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Grynspan hefur lýst yfir framboði en stuðning aðildarríkis þarf til kjörgengis. Síle hafði þegar tilnefnt Michele Bachelet fyrrverandi forseta landsins.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, tók við embætti í ársbyrjun 2016 og lýkur kjörtímabili hans í árslok næsta árs, 2026. Allsherjarþingið kýs formlega aðalframkvæmdastjóra að tillögu öryggisráðsins.
Grynspan hefur óskað eftir leyfi frá störfum sem forstjóri UNCTAD, Ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun.
Engin kona
Engin kona hefur gegnt stöðu aðalframkvæmdastjóra. Guterres varð áttundi karlinn til að veljast til forystu Sameinuðu þjóðanna 2016. Nokkrar konur voru þá í framboði og fleiri konur frá Mið- og Suður-Ameríku þykja líklegar til að etja kappi við Grynspan.
Grynspan er hagfræðingur að mennt og fyrrverandi vara-forseti Costa Rica. Hún hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstöðum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hún gegndi lyklhlutverki í að Úkraína og Rússland náðu samkomulagi um áframhaldandi útflutning kornmetis frá Úkraínu eftir allsherjarinnrás Rússlands.

Gabriel Borick fosreti Sílé lýsti því yfir að landið tilnefndi Michelle Bachelet til embættisins í ræðu á allsherjarþinginu í september. Líkt og Grynspan hefur Bachelet umtalsverða reynslu í forystustörfum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hún var forstjóri Jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (2010-2013) og mannréttindastjóri samtakanna 2018-2022. Bachelet gegndi tvívegis embætti forseta Síle 2006-2010 og 2014-2018.
