Jarðskjálftar: Farið fram á 400 milljóna aðstoð við Sýrlendinga

0
278
Jarðskjálftar Sýrland
Sofandi börn í Al-Midan moskunni í Aleppo í Sýrlandi. © UNHCR/Hameed Maarouf

Jarðskjálftar. Sýrland. Ákall um fjárveitingar. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fór í dag fram á tæplega 400 milljón dala framlög til að standa straum af hjálp við bágstadda vegna jarðskjálfta í Sýrlandi. Sams konar ákall um aðstoð við Tyrkland er í undirbúningi.

Sameinuðu þjóðirnar reiddu 50 milljónir dala fram til aðstoðar við þá sem sárt eiga að binda strax eftir jarðskjálftanna. Féð kom úr Miðlægum hamfarasjóði samtakanna  (CERF, Central Emergency Response Fund).

Jarðskjálftar Sýrland
Fólk í Aleppo í Sýrlandi nær sér í drykkjarvatn. © UNICEF/Muhannad Al-Asadi

„Skilvirkasta leiðin til að sýna fólkinu samstöðu er með því að láta fé af hendi í þessa söfnun vegna hamfaranna,“ sagði Guterres á blaðamannafundi. „Okkur er öllum ljóst að lífsnauðsynleg aðstoð hefur ekki borist á þeim hraða og í því umfangi sem nauðsynlegt er.

Þessar hamfarir eru með þeim skæðustu á síðustu árum. Viku eftir eyðileggingu jarðskjálftanna, róa milljónir manna lífróður, heimislausir í frosthörkum. Við erum að gera allt sem við getum. En meira þarf til.“

Aðstoð berst frá Tyrklandi

Sýrland jarðskjálftar
Hjálparsamtök koma fólki fyrir í tjöldum nærri Aleppo í Sýrlandi.
UNOCHA/Mohanad Zayat

 

Allt Sameinuðu þjóða-kerfið og samstarfsmenn þess í mannúðarmálum mun leggjast á eitt til að koma brýnni, lífsnauðsynlegri hjálp til nærri fimm milljóna Sýrlendinga. Þar á meðal eru skýli, heilbrigðisþjónusta, matvæli og vernd. Ellefu bíla lest er nú á leið um Bab Al-Salam landamærastöðina á mörku Tyrklands og Sýrlands og margar fleiri eru á leiðinni.

„Það má ekki auka á þjáningar af völdum þessara sögulegu náttúruhamfara með því að við bætist hindranir af mannavöldum; svo sem skortur á aðgangi, fjármagni og birgðum. Tryggja ber að aðstoð berist úr öllum áttum, frá öllum aðilum, um alla vegi, án hindrana,“ sagði Guterres.

Í gær fagnaði hann ákvörðun Sýrlandsstjórnar um að opna tvær landamærastöðvar á mörkum Tyrklands og norðvestur Sýrlands í þrjá mánuði svo hæt sé að koma mannúðaraðstoð til skila.