Tungumál tapast á tveggja vikna fresti

0
680
Regina í Kanada. Mynd:Tandem X Visuals/Unsplash

Talið er að eitt af sjö þúsund tungumálum veraldar hverfi á tveggja vikna fresti. Það þýðir að tungumálum heimsins fækki um helming fyrir næstu aldamót. Til að sporna meðal annars við þessari þróun hefur Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna lýst yfir að 2022-2032 verði áratugur frumbyggjamála.

Það er svo sannarlega ekki tilviljun að tungumál frumbyggja eigi sérstaklega undir högg að sækja.

Frumbyggjamála
Veggmynd í Minneapolis/Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0

Málefni frumbyggja í Norður-Ameríku voru töluvert í sviðsljósi á síðasta ári þegar ómerktar grafi barna í heimavistarskólum í Kanada fundust. Málið varð til þess að rifjað var upp hvernig börn voru tekin frá foreldrum sínum og töpuðu meðal annars menningararfleifð sinni og móðurmáli. Þeim var kennd enska, kristni og verkleg störf.

Í Bandaríkjunum var sama upp á  teningnum og má segja að í báðum ríkjum hafi verið reynt skipulega að uppræta mál frumbyggja í tvær aldir. Alls eru 169 „Indíána“ mál enn töluð, svo sem Anishaabe, Cherokee, Navajo og Teva. Aðeins 20 eru töluð af tvö þúsund eða fleiri og nánast öll eru talin í útrýmingarhættu. Gagnrýnt hefur verið að Bandaríkjamenn hafa hingað til sýnt alþjóðlega áratugnum lítinn áhuga, þótt stuðningur við rækt þessara mála hafi aukist í stjórnartíð núverandi forseta Joe Bidens.

Prjón stungið í gegnum tungu

Mynd: Wonderlane/Unsplash

Dæmi voru um í Bandaríkjunum að stungið væri prjón í gegnum tungu frumbyggjabarna ef þau töluðu móðurmál sitt í skólanum. Ekki má gleyma því að sömu sögu var að segja af mörgum Evrópuríkjum. Þannig var til  dæmis lengi slegið á hendur bretónskra barna í frönskum skólum ef þau töluðu sín á milli á bretónsku.

Alþjóðlegt ár frumbyggjamála heimsins hófst 1.janúar 2022. UNESO, Mennta-, menningar og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur veg og vanda af skipulagningunni. Það byggir á starfi ársins 2019 sem var Alþjóðlegt ár frumbyggjamála.

Mörg ríki sem eiga í hlut hafa tekið saman landsáætlanir til að bæta stöðu frumbyggjamála.

Sjá einnig hér, hér og hér.