6.september 2016. Almennur aðgangur að internetinu getur skipt sköpum um hvort heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun verður náð að sögn Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðunum hefur samþykkt ályktun um mannréttindi á netinu, þar sem bent er á nýja og spennandi möguleika sem tengjast Sjáflbæru þróunarmarkmiðunum.
Í ályktuninni er bent á að útbreiðsla netsins geti reynst þung á metunum, því aðgangur að upplýsingum, samskiptatækni og hnattrænum tengslum, geti hraðað þróun .
Eitt af sjálfbæru þróunarmarkmiðunum (númer 9) kveður á um að efla skuli innviði og í undirmarkmiði segir að stefnt sé að því sérstaklega að auka verulega aðgang að upplýsingum og samskiptatækni og leitast við að minnst þróuðu ríki heims hafi almennan aðgang að internetinu á viðráðanlegu verði fyrir 2020.
Þá er bent á í ályktun Mannréttindaráðsins að aðgangur að netinu og samskiptatækni, geti stuðlað að valdeflingu kvenna og stúlkna með því að auka stafræna læsi og auka þátttöku þeirra í menntun og þjálfun í að nota upplýsingar og samskiptatækni. Slíkt myndi síðan greiða leiðina fyrir konur og stúlkur til að hasla sér völl í vísindum og upplýsinga og samskiptatækni.
Í ályktuninni er Zeid Ra´ad al Hussein, Mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna falið að taka saman skýrslu um hvernig hægt sé að brúa bilið í aðgengi að stafrænni tækni frá sjónarhóli mannréttinda.
Brasilía, Nígería, Svíþjóð, Túnis, Tyrkland og Bandaríkin stóðu að baki ályktuninni.
Myndir: Jafnréttisstofnun Sameinuðu þjóðanna skipuleggur tölvuþjálfun á verndarsvæði fyrir almenna borgara í Juba í Suður-Súdan. UN Photo/JC McIlwaine.
UNMIL hefur skipulagt tölvuþjálfun fyrir unga Líberíubúa í Monrovia.. UN Photo/Staton Winter.