Konur efla friðargæslu Sameinuðu þjóðanna

0
873

Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna starfa nú við enn meira krefjandi aðstæður en vant er, nú þegar COVI19 hamfarirnar bætast við í þeim stríðshrjáðu ríkjum sem þeir þjóna. Ekki aðeins þurfa þeir sjálfir að glíma við hamfarirnar heldur styðja þeir og vernda íbúana í friðargæslustörfum sínum. Alþjóðlegur dagur friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna er 29.maí.

Alþjóðlegur dagur friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna
Katariina Lausto finnski friðargæsluliðinn með samstarfsfólki á vettvangi. Mynd: einkasafn.

Konur í friðargæslu leika svo enn mikilvægara hlutverk nú en nokkru sinni fyrr á þessum krefjandi kórónaveirutímum (COVID-19).

„Það eru margar konur hér sem tala ekki við karlmenn,“ útskýrir Lisbeth Pedersen danskur friðargæsluliði sem starfar hjá MINUSMA í Malí. „Það þýðir að ef það væru engar konur í friðargæsluliðinu gætum við ekki átt orðastað við konur og börn. Þar með væri helmingur íbúanna útilokaður frá friðargæsluferlinu.“

„Við höfum möguleika á að safna upplýsingum sem karlar geta ekki,“ segir norski friðargæsluliðinn Katrine Seland sem starfar sem lögreglukona hjá UNMISS-sveit Sameinuðu þjóðanna í Suður-Súdan.

Alþjóðlegur dagur friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna
Það er ekkert sem konur geta ekki gert í friðargæslu. Mynd: einkasafn.

Þema Alþjóðlegs dags friðargæsluliða í ár er „Konur í friðargæslu: Lykill að friði.“ Kastljósinu er beint að miðlægu hlutverki þeirra í friðargæslusveitum Sameinuðu þjóðanna í tilefni af 20 ára afmæli ályktunar Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna 1325 um konur, frið og öryggi.

„Konur í friðargæslu eru í framvarðasveit í viðbrögðunum við COVID-19 á svæðum sem þegar áttu undir högg að sækja. Þær nota staðbundið útvarp til að dreifa upplýsingum um lýðheilsu, koma nauðsynlegum bunaði til forvarna til einstakra samfélaga og styðja starf við friðaruppbyggingu,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi í tilefni Alþjóðlegs dags friðargæsluliða 29.maí.

Alþjóðlegur dagur friðargæsluliða
Norski friðargæsluliðinn Katrine Seland.

„Ekkert erfiðara fyrir okkur”    

Konur eru hins vegar ekki nema 6% af friðargæsluliðum, hvort heldur sem er einkennisklæddum hermönnum, lögreglumönnum eða öðrum í friðargæslusveitum Sameinuðu þjóðanna. Þær voru aðeins 1% árið 1993.

Árið 2019 voru konur 4.7% í herliði og 10.8 af lögregluliði já vegum friðargæslunnar. Markmiðið er að konur verði 15% herliðs og 20% lögregluliðs árið 2028.

Alþjóðlegur dagur friðargæsluliða

Sænski friðargæsluliðinn Lotta Sjunesson hvetur konur til að ganga til liðs við friðargæsluna.  „Það er ekkert sem gerir þetta erfiðara fyrir okkur konur,“ segir Sjunnesson sem er í friðargæslunni i Suður-Súdan. „Engin skyldi halda að færri möguleikar standi konum til boða.“

Almennt er konum í friðargæslu vel tekið í þeim ríkjum þar sem þær starfa. „Fólk sem við hittum á förnum vegi á eftirlistferðum brosir og veifar okkur,” Katariina Lausto frá Finnlandi sem starfar í Líbanon. „Fólk er ánægt að sjá að það séu líka konur í friðargæslunni.“

Mikilvægt framlag Norðurlanda

  • Svíþjóð leggur Sameinuðu þjóðunum til flesta friðargæsluliða af Norðurlöndunum eða 288. Konur eru líka flestar þaðan eða 56 talsins. Flestir Svíanna eru í þjónustu MINUSMA í Malí (191 karl/37 konur). Tuttugu Svíar eru í Suður-Súdan og ellefu í Kongó. Það er óvenjulegt að það er nokkuð gott kynjajafnvægi í þessum tveimur friðargæslusveitum, en tólf karlar og átta konur eru í UNMISS í fyrra ríkinu og sex karlar og fimm konur í MONUSCO í því síðara. Sænskir friðargæsluliðar eru svo einni í Indlandi/Pakistan (4/1), Somalíu (3/0),  Kólombíu (2/0), Kýpur  (1/1) og Jemen (1/0).
  • Finnland hefur löngum verið rausnarlegt í friðargæslu. 231 Finni þjóna hjá “Bláu hjálmunum (Blue helmets) eins og friðargæsla SÞ er oft kölluð, þar af 18 konur.  Finna eru í 8 mismunandi friðargæslusveitum, en langflestir eru í UNFIL sveitinni í Líbanon. 198 eru þar í elstu friðargæslusveit samtakanna, þar á meðal 12 konur.
  • 61 Norðmaður er í friðargæslu samtakanna, þar af 13 konur. Flestir þeirra eru í UNMISS í Suður-Súdan 26 (21/5) og MINUSMA í Malí 20 (14/6) og svo tólf hjá UNTSO (11/1), 1 í Líbanon og ein kona í Kólombíu.
  • Enginn Íslendingur er í friðargæslu Sameinuðu þjóðanna á vegum heimalands síns, en margir hafa verið ráðnir beint af samtökunum í áranna rás.

95 þúsund hermenn, lögreglumenn og borgaralegt starfslið skipar Friðargæslu samtakanna og starfa í 13 verkefnum.

Fleiri en ein milljón karla og kvenna hafa þjónað friðargæslunni frá stofnun hennar 1948 og hafa 3900 týnt lífi við skyldustörf á hennar vegum, þar af 102 á síðasta ár.

Nánari upplýsingar: 

Um Alþjóðlegan dag friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna sjá hér.

Um Friðargæslu Sameinuðu þjóðanna sjá hér.

Um ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr.1325 um konur, frið og öryggi sjá hér. 

Um hvernig gerist maður sjálfboðaliði í friðargæslu Sameinuðu þjóðanna sjá hér.

Ávarp aðalaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sjá hér.