20.apríl 2016. 60 þjóðarleiðtogar munu undirrita Loftslagssáttmála Sameinuðu þjóðanna á föstudag, á Degi jarðar.
Alls munu að minnsta kosti 130 ríki undirrita Parísarsáttmálann svokallaða á fyrsta degi, þar á meðal Kína og Bandaríkin.
Ísland sendir umhverfisráðherra sinn, Sigrúnu Magnúsdóttur til að undrrita samkomulagið á sérstakri undirritunarathöfn sem Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur boðað til í höfuðstöðvum samtakanna.
Loftslagssamkomulagið tókst á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í desember. Það gengur í gildi þegar 55 ríki, sem samanlagt bera ábyrgð á 55% útblásturs gróðurhúsalofttegunda hafa staðfest það.
Sáttmálinn er svo opinn til undirritunar í eitt ár.