Staðfest að 2010-2019 var heitasti áratugur sögunnar

0
624
Loftslagsmál.
Jökulsárlón. UN Photo/Eskinder Debebe.

Síðustu tíu ár voru heitustu ár sem um getur að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Alþjóða veðurfræðistofnuninni sem birt var í dag.

Meðal hitinn í heiminum var 1,1°C hærri en fyrir iðnbyltingu árið 2019.

„Við erum langt í frá að vera á leiðinni að ná því takmarki að hitaaukningin verði innan við 1.5°C eð 2°C eins og stefnt var að í Parísarsamkomulaginu,“ skrifar António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í aðfararorðum skýrslunnar.

Loftslag Alþjóða veðurfræðistofnunin
Forsíða skýrslunnar: „Yfirlýsing Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar um ástand loftslags í heiminum 2019″

Í henni eru staðfestar bráðabirgðaniðurstöður sem lagðar voru fram á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember 2019 þess efnis að árið 2019 hafi verið næst heitasta ár frá upphafi mælinga.

Fimm heitustu árin

Árin 2015-2019 eru fimm heitustu ár sögunnar og 2010-2019 heitasti áratugurinn. Frá byrjun níunda áratugarins hefur hver áratugur verið heitari en sá sem á undan kom. 2019 var hitastigið 1.1°C hærri en fyrir iðnbyltingu og var næstheitasta ár sögunnar. 2016 var heitara en þá gætti áhrifa mjög öflugs El Niño hafstraums.

„Þar sem losun gróðurhúsalofttegunda heldur áfram að aukast, mun hitastig halda áfram að hækka. Spá fyrir næsta áratug bendir til að líklegt sé að met yfir heitustu ár muni falla á næstu fimm árum. Það er aðeins tímaspursmál,“ segir Petteri Taalas forstjóri Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar.

Hlýjasti janúar

„Janúar síðastliðinn var sá hlýjasti frá byrjun mælinga. Veturinn hefur verið óvenjulega mildur víða á norðurhveli. Reykur og mengun frá eldunum í Ástralíu hafa borist um heiminn og valdið aukningi í losun CO2. Methita á Suðurskautslandinu hefur fylgt mikil bráðnun íss og uppbrot jökuls þar mun hafa áhrif á hækkun yfirborðs sjávar,“ segir Taalas.

Skýrslan nefnist „Yfirlýsing Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar um ástand loftslags í heiminum 2019“. Þar eru dregnar saman upplýsingar frá veðurstofum einstakra landa í heiminum, vatnamælingum, helstu alþjóðlegu sérfræðingum og stofnunum Sameinuðu þjóðanna.