![Danska sendinefndin á Allsherjarþinginu í dag: Christina Markus Lassen, fastafulltrúi Dana fyrir miðju og Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra til hægri.](https://unric.org/is/wp-content/uploads/sites/10/2024/06/UN71044870__ME19065_-696x464.jpg)
Danmörk hefur verið kosin í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í fimmta skipti í sögunni. Það er Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem kýs tíu af fimmtán meðlimum Öryggisráðsins en fimm ríki eiga þar fast sæti.
Danmörk og Grikkland náðu kjöri fyrir hönd svokallaðs Vestur-Evrópu og annara hópsins. Danir fengu 184 atkvæði af 190 en Grikkir 182. Pakistan, Panama og Sómalíu setjast svo í ráðið fyrir hönd Asíu, Suður-Ameríku og Afríku. Öll ríkin voru í framboði innan sinna ríkjahópa án mótframboðs. Kjörtímabil þessara ríkja er frá ársbyrjun 2025 til ársloka 2026.
![Christina Markus Lassen, fastafulltrúi Dana á fundi Öryggisráðsins.](https://unric.org/is/wp-content/uploads/sites/10/2024/06/UN71033144-392x261.jpg)
Eyrnamerkt sæti
Tveimur sætum í Öryggisráðinu er úthlutað til ríkja innan svokallaðs Vestur-Evrópu og annara hóps og er kosið annað hvert ár. Tvö sæti eru eyrnarmerkt Suður-Ameríku og Karíbahafs-ríkjahópnum og er kosið um eitt sæti árlega. Sami háttur er hafður á við kjör tveggja ríkja frá Asíu og Kyrrahafssvæðinu.
Alls eru því tíu ríki kosin til setu í Öryggisráðinu, en auk þeirra eiga fimm ríki þar fast sæti og hafa neitunarvald. Það eru Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Rússland.
![Atkvæðagreiðsla á Allsherjarþinginu í dag.](https://unric.org/is/wp-content/uploads/sites/10/2024/06/UN71044797-392x261.jpg)