WHO: sýklayf ofnotuð gegn COVID

0
3
75% COVID-19 sjúklinga fengu sýklalyf á sjúkrahúsum – ef verra kynni að þau gögnuðust. Mynd: Martin Sanchez/Unsplash
75% COVID-19 sjúklinga fengu sýklalyf á sjúkrahúsum – ef verra kynni að þau gögnuðust. Mynd: Martin Sanchez/Unsplash

Sýklalyfjaþol. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin. Sýklalyf voru verulega ofnotuð á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn gekk yfir og kann þetta að hafa ýtt undir sýklalyfjaþol að mati Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að sýklalyfjaþol (sýklalyfjaónæmi) sé í hópi tíu alverlegustu lýðheilsuógna í heiminum.

Þótt aðeins 8% þeirra sem lagðir voru inn á sjúkrahús með COVID-19 glímdu jafnframt við bakteríusýkingu fengu þrír af hverjum fjórum sýklalyf, einfaldlega í þeirri von að það kæmi að notum.

Sýklalyf komu sjújklingum með COVID-19 ekki að notum. Mynd:

Mufid Majnun /Unsplash

Sýklalyf komu sjújklingum með COVID-19 ekki að notum. Mynd:
Mufid Majnun /Unsplash

Enginn ávinningur

„Þegar sjúklingur þarfnast sýklalyfja er ávinningurinn oft og tíðum meiri en áhætta sem fylgir aukaverkunum eða auknu þoli gegn sýklalyfjum,“ segir Silvia Bertagnolio sérfræðingur hjá WHO. „Ef þau eru ónauðsynleg er hins vegar enginn ávinningur af notkun þeirra á sama tíma og notkun þeirra er áhættusöm og stuðlar að útbreiðslu sýklalyfjaþols.”

Ofnotkun sýklalyfja á COVID tímanum kann að hafa ýtt undir útbreiðslu sýklalyfjaþols. Mynd: Vladimir Fedotov/Unsplash
Ofnotkun sýklalyfja á COVID tímanum kann að hafa ýtt undir útbreiðslu sýklalyfjaþols. Mynd: Vladimir Fedotov/Unsplash

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að þegar á heildina er litið hafi notkun sýklalyfja gegn COVID-19 lítt gagnast sjúkingum. Hún hafi jafnvel verið skaðleg sjúklingum sem voru lausir við bakteríusýkingar, samanborið við þá sem ekki fengu sýklalyf. Þetta undirstrikar, að mati WHO, nauðsyn skynsamlegrar beitingar sýklayfja til að draga eins mikið og hægt er úr neikvæðum afleiðingum fyrir sjúklinginn og samfélagið.