Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur tilkynnti um 80 milljóna króna framlag til mannúðaraðstoðar í Búrkína Fasó, Malí og Níger. Ríkin þrjú eru á svonefndu Mið-Sahelsvæði þar sem hungursneyð er yfirvofandi. Kórónuveirufaraldurinn sem nú geisar í heiminum hefur gert ástandið þar enn verra.
Sérstök áheitaráðstefna Sameinuðu þjóðanna um Mið-Sahelsvæðið fór fram í dag. Í ræðu sem utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra flutti í gegnum fjarfundarbúnað lagði hann áherslu á að Ísland muni halda áfram málsvarastarfi á sviði mannréttinda. Þá vakti hann athygli á hnignandi jafnrétti í þessum heimshluta. Það mætti meðal annars rekja til ytri áhrifa kórónuveirufaraldursins. Einnig nefndi ráðherra mikilvægi grænnar langtímasýnar og samlegðaráhrifa mannúðarstarfs, þróunarsamvinnu og friðaraðgerða.
Kórónaveira bætt gráu ofan á svart
Framlag Íslands er til tveggja ára og skiptist jafnt á milli Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) en þær eru á meðal áherslustofnana Íslands á sviði mannúðarmála.
Neyð í Sahel
Neyðin í Mið-Sahel er talin ein sú versta í heiminum í dag. Búrkína Fasó, Malí og Níger eru við þolmörk en mikið neyðarástand hefur skapast þar að undanförnu og þörfin fyrir alþjóðlega aðstoð aukist að sama skapi. Hungursneyð blasir við íbúum svæðisins, fjöldi fólks er á flótta og kynferðislegt og kynbundið ofbeldi er alvarlegt vandamál. Orsakirnar eru margar og samofnar en langvarandi fátækt og atvinnuleysi, mikil fólksfjölgun, loftlagsbreytingar, veikir stjórnarhættir og vopnuð átök eru á meðal þeirra.
(Heimild: utanríkisráðuneytið)