António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði í dag að heimsbyggðin stæði nú frammi fyrir „neyðarástandi í hafinu“ eftir að hafa látið skeika allt of lengi að sköpuðu.
Í opnunarræðu sinni á Hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Lissabon í Portúgal í dag, sagði hann að tími aðgerða væri runninn upp.
„Við verðum að snúa þróuninni við,“ sagði Guterres og benti á að hlýnun jarðar hefði í för með sér methitastig í hafinu með þeim afleiðingum að ofsaveður væru tíðari, hafið súrara og yfirborð þess hærra en áður.
„Heilbrigð pláneta án heilbrigðs hafs er ekki í boði. Ef við hlúum ekki að hafinu mun það hafa margs konar áhrif á alla liði Áætlunar 2030,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn og vitnaði til Heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun.
Plastmengun, ofveiði og súrnun
Á annari Hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 27.júní til 1.júlí verða málefni á borð við plastmengun og ofveiði í deiglunni, auk verndarsvæða í sjónum, námagröft á hafsborni, vernd og endurreisn vistkerfa sjávar.
Á ráðstefnunni verður leitast við að efla nýsköpun byggða á vísindalegri þekkingu til að hvetja til aðgerða og hefja nýjan kafla í aðgerðum í þágu hafsins.
„Nærri 80% skólps er losað í hafið án hreinsunar. Og meir en 8 milljónir tonna af plastrusli er fleygt í hafið á ári. Ein plastþekjan á Kyrrahafinu er stærri en Frakkland. Án brýnna aðgerða getur verið meira af plasti en fiski í sjónum fyrir 2050,“ sagði Guterres.
Hafið er helsta lífsviðurværi rúmlega eins milljarðs manna. 40 milljónir manna vinna störf sem tengjast sjónum.
Sjálfbærar fiskveiðar
Hann sagði að árangur hefði náðst á alþjóðlegum vettvangi nýverið. Nefndi hann sérstaklega að verið er að semja um nýjan samning til að takmarka plastmengun og að Alþjóða viðskiptastofnunin hefur samþykkt að binda enda á skaðlegar ríkisstyrki til fiskveiða.
„Með sjálfbærri nýtingu sjávar má sækja allt að sex sinnum meiri fæðu til hans og framleiða 40 sinnum meira endurnýjanlega orku en nú er,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn í opnunarræðu sinni á Hafráðstefnunni í Lissabon.
Portúgal og Kenía eru gestjafar í sameiningu og á meðal þátttakenda eru 15 þjóðhöfðingjar og 8 oddvitar ríkisstjórna.