Samanlagðar áætlanir ríkisstjórna heims um framleiðslu jarðefnaeldsneytis fram til ársins 2030 fela í sér meir en tvöfalt meira magn en því sem samræmist að hlýnun jarðar haldist innan við 1.5°C.
Þetta er niðurstaða úttektar leiðandi rannsóknarstofnana í heiminum og Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNEP. Áætlanirnar gagna í berhögg við fyrirheit um metnaðarfyllri loftslagsaðgerðir og skuldbindingar um að ná kolefnisjafnvægi.
Skýrslan um bilið á milli áætlana um framleiðslu eldsneytis og þess sem þarf til að ná markmiðunum í loftslagsmálum var fyrst gefin út 2019.
Þar er bilið mælt á milli áætlana ríkisstjórna um framleiðslu á kolum, olíu og gasi og þeirri hámarks-heimsframleiðslu sem gæti rúmast innan hlýnunarmarkmiða Parísarsamningsins.
Tveimur árum síðar er bilið á milli framleiðsluáætlana og loftslagsmarkmiða að mestu leyti óbreytt.
Aukning í olíu og gasi
Samanlagðar áætlanir ríkisstjórna heims fela í sér aukningu olíu- og gasframleiðslu en að örlítið verði dregið úr kolaframleiðslu. Samanlagt benda áætlanir og spár til þess að samanlögð framleiðsla á jarðefnaeldsneyti aukist þangað til að minnsta kosti til 2040 og því breikki bilið á milli framleiðslu og þess sem þarf til að ná loftslagsmarkmiðum.
„Skaðlegar afleiðingar loftslagsbreytinga eru öllum augljósar. Það er enn tími til að takmarka langtíma hlýnun jarðar við 1.5°C, en sá gluggi sem er opinn til að grípa til aðgerða, mun skjótt lokast,” segir Inger Andersen forstjóri UNEP, Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna.
„Niðurstaða úttektarinnar er ljós. Það verður að minnka kola, olíu og gasframleiðslu heimsins tafarlaust og skjótt til þess að hægt verði að halda hlýnun jarðar innan 1.5°C marksins,” segir Ploy Achakulwisut aðalhöfundur skýrslunnar og vísindamaður við SEI, Umhverfisstofnunina í Stokkhólmi. „Þrátt fyrir þetta gera áætlanir ríkisstjórna heims ráð fyrir að halda áfram jarðefnaeldsneytisframleiðslu langt umfram það sem öruggt má teljast.“
Helstu niðurstöður skýrslunnar eru meðal annars:
- Áætlanir ríkisstjórna heims fela í sér um það bil 110% meiri framleiðslu miðað við árið 2030 en samsvarar markmiðum um að halda hlýnun jarðar innan 1.5°C marksins og 45% miðað við 2°C. Þetta bil er að mestu leyti óbreytt miðað við fyrri úttektir.
- Áætlanir ríkisstjórna og spár gera ráð fyrir 240% meiri kolaframleiðslu, 57% meiri olíuframleiðslu og 71% meiri gasframleiðslu 2030 en samræmist því að halda hlýnun innan við 1.5°C.
- Búist er við að gasframleiðslan aukist mest á árunum 2020 til 2040 miðað við áætlanir stjórnvalda. Þetta áframhald gasframleiðslu til lengri tíma litið er ósamræmanlegt markmiðum Parísarsamningsins.
- Ríki haf veitt andvirði meir en 300 milljón milljóna í nýja fjármögnun jarðefnaeldsneytisverkefna frá því COVID-19 faraldurinn braust út. Það er meira en varið hefur verið til hreinnar orku.
- Á hinn bóginn hafa opinberar, alþjóðlegar fjárveitingar 620 ríkja til framleiðslu jarðnefnaeldsneytis minnkað verulega, þar með talið fjárveitingar milliríkja-þróunarbanka.
Skýrslan var unnin af Umhverfisstofnuninni í Stokhólmi (Stockholm Environment Institute (SEI)),Alþjóðastofnun sjálfbærrar þróunar (International Institute for Sustainable Development (IISD)), ODI, E3G, og UNEP. Rúmlega 80 vísindamenn tóku þátt í greiningu og yfirferð og tóku fjölmargir háskólar, hugveitur og rannsóknarstofnanir þátt í verkinu.
Sjá nánar hér.