Heimurinnn brennur: Við þurfum byltingu endurnýjanlegrar orku

0
435
Skýrsla loftslagsnefndar SÞ
Endurnýjanleg orka

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir seinagang í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu í leyfisveitingum til vindorkuvera. Í kjallaragrein sem birtist í fjölmiðlum víða um heim, segir Guterres að það geti tekið 8 ár í ESB og 10 ár í Bandaríkjunum að fá slíkt leyfi.

Grein aðalframkvæmdastjórans um endurnýjanlega orkugjafa má lesa í heild hér að neðan. Hún birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.

Heimurinnn brennur. Við þurfum byltingu endurnýjanlegrar orku

-eftir António Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.

António Guterres.
António Guterres. Mynd: UN Photo/Mark Garten

Rómverski keisarinn Neró var sakaður um að leika á fiðlu á meðan Róm brann. Sumir leiðtogar okkar tíma eru sýnu verri. Þeir kasta olíu á eldinn. Bókstaflega.

Afleiðingar innrásar Rússlands í Úkraínu finnast um allan heim. Viðbrögð sumra ríkja við vaxandi orkukreppu er að grípa í enn ríkari mæli til jarðefnaeldsneytis. Andvirði milljarða Bandaríkjadala er varið í kol, olíu og gas, sem eru drifkraftar síversnandi loftslagshamfara.

Á sama tíma er hvert metið á fætur öðru slegið í loftslagsmálum. Því er spáð að ofsaveður, flóð, þurrkar, jarðeldar og óbærilegur hiti muni einkenna framtíðina á stórum hluta jarðar.

Heimur okkar stendur andspænis loftslags-óreiðu. Nýjar fjárfestingar í leit að olíulindum og innviðum olíuframleiðslu eru blekking. Jarðefnaeldsneyti er er ekki svarið og mun aldrei verða. Við sjáum skaðann sem það veldur plánetunni og þjóðfélagi okkar. Það er í fréttunum daglega og enginn er undanskilinn. Jarðefnaeldsneyti er orsök loftslagsvárinnar. Endurnýjanlegir orkugjafar eru svarið því notkun þeirra takmarka röskun á loftslaginu og eflir orku-öryggi.

Friðaráætlun 21.aldarinnar

Ef fjárfest hefði verið fyrr og meir í endurnýjanlegri orku, værum við ekki háð óstöðugum markaði jarðefnaeldsneytis. Endurnýjanleg orka er friðaráætlun 21.aldarinnar. En baráttan fyrir skjótum og réttlátum orkuskiptum, er ójafn leikur. Fjárfestar veðja enn á jarðefnaeldsneyti og ríkisstjórnir niðurgreiða kol, olíu og gas með milljörðum dala – 11 milljónir á hverri mínútu. Það er til orð yfir að velja skammvinna sælu í stað langtíma velferðar. Fíkn. Við erum háð jarðefnaeldsneyti. Við verðum að hætta í nafni heilbrigðis samfélaga okkar og plánetunnar. Núna.

Skýrsla loftslagsnefndar SÞ
Endurnýjanleg orka, svo sem sólar og vindorka.

Eina færa leiðin til öryggis í orkumálum, stöðugs verðlags á orkugjöfum, velmegunar og lífvænlegrar plánetu felst í því að hætta að nota mengandi jarðefnaeldsneyti. Þess í stað þarf að hraða umskiptum yfir í endurnýjanlega orku.

Í þessu skyni hef ég eggjað ríkisstjórnir G20 ríkjanna til að leysa upp innviði kola-iðnaðarins, og hætta kolavinnslu smám saman fyrir 2030 í OECD ríkjum og fyrir 2040 annars staðar.  Ég hef hvatt fjármálaheiminn til að segja skilið við jarðefnaeldsneyti og fjárfesta þess í stað í endurnýjanlegri orku.

Fimm liða áætlun

Og ég hef lagt fram áætlun í fimm liðum til að efla endurnýjanlega orku um allan heim.

Í fyrsta lagi ber tækni í endurnýjanlega orkugeiranum að vera almannaeign. Það felur í sér afnám hindrunum á sviði höfundarréttar fyrir því að tækniþekkingu sé deilt.

Í öðru lagi verður að bæta aðgang um víða veröld að aðfangakeðju þeirra hluta sem til þarf tæknilega í endurnýjanlegri orku, auk hráefna. Árið 2020 nam geta rafhlaða í heiminum til að hýsa orku að hámarki 5 gígavöttum, en fyrir 2030 þarf að auka þetta í 600 gígavött. Þetta krefst alþjóðlegs bandalags. Flöskuhálsar í sjóflutningum og hindranir í aðfangakeðjunni, auk hás verðs á líþíumi og öðrum málmum til rafhlöðugerða, standa notkun slíkrar tækni fyrir þrifum, einmitt þegar við þurfum mest á henni að halda.

8-10 ár að fá leyfi fyrir vindorku

Skýrsla loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna
Vindorkuver

Í þriðja lagi þarf að ryðja úr vegi skrifræðislegum hindrunum sem standa í vegi fyrir verkefnum á sviði sólar- og vindorku. Leyfa ber flýtimeðferð til að samþykkja slík verkefni og efla viðleitni til að nútímavæða raforkuflutninga. Innan Evrópusambandsins tekur 8 ár að samþykkja vindorkuver og 10 ár í Bandaríkjunum. Í Suður-Kóreu þarf 22 leyfi frá 8 mismunandi ráðuneytum til að samþykkja vindorkuver á landi.

Í fjórða lagi ber að færa niðurgreiðslur á orku í heiminum frá jarðefnaeldsneyti til þeirra sem höllustum standa fæti og vernda þá fyrir verðhækkunum.  Fjárfesta ber í réttlátum umskiptum  í þágu sjálfbærrar framtíðar.

Í fimmta lagi þurfum við að þrefalda fjárfestingar í endurnýjanlegri orku. Þetta á jafnt við um milliríkja-þróunarbanka og viðskiptabanka. Öllum ber að herða sig og auka fjárfestingar í endurnýjanlegri orku umtalsvert.

Veraldarleiðtogar verða að spýta í lófana. Við erum nú þegar hættulega nærri 1.5°C markinu sem vísindin segja okkur að sé sú hámarkshlýnun sem megi verða til að forðast alvarlegustu afleiðingar loftslagsbreytinga. Til þess að halda markmiðinu um 1.5°C, verður að minnka losun um 45% fyrir 2030 og ná nettó-núll losun fyrir miðja öldina. En núverandi landsmarkmið gera ráð fyrir nærri 14% aukningu á þessum áratug.

Olía hækkar – endurnýjanleg orka lækkar

Loftslagsmál
Aðgerðir í loftslagsmálum er eitt af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Þetta felur í sér hamfarir. Svarið eru endurnýjanlegir orkugjafar – í þágu loftslagsaðgerða, orkuöryggi og til þess að útvega þeim hundruð milljóna manna hreint rafmagn, sem enn ekki njóta þess.

Þrefaldur ágóði er af orkugjöfunum endurnýjanlegu. Það er engin afsökun fyrir því að hafna endurnýjanlegu orkubyltingunni. Á sama tíma og verð á olíu og gasi slá met, lækkar verð á endurnýjanlegri orku. Kostnaður við sólarorku og rafhlöður hefur lækkað um 85% á síðustu 3 áratugum. Kostnaður við vindorku hefur lækkað um 55%. Og fjárfestingar í endurnýjanlegri orku skapa þrisvar sinnum fleiri störf en jarðefnaeldsneyti.

Hættum að leika á fiðlu

Auðvitað eru endurnýjanlegir orkugjafar ekki eina svarið við loftslagsvánni. Lausnir sem sóttar eru til náttúrunnar eins og að snúa við skógar- og landeyðingu, skipta sköpum. Sama máli gegnir um betri orkunýtingu. En við verðum að stefna að umskiptum yfir í endurnýjanlega orku.

Kostirnir við að venja okkur af jarðefnaeldsneyti eru verulegir – ekki aðeins fyrir loftslagið. Orkuverð mun lækka og verða fyrirsjáanlegra og slíkt hefur góð áhrif á matvæla- og orkuöryggi. Þegar orkuverð hækkar, hækkar verð á mat og öðrum vörum að sama skapi. Þess vegna ættum við öll að geta samþykkt að skjótrar byltingar í endurnýjanlegum orkugjöfum er þörf og við ættum að hætta að leika á fiðlu á meðan framtíðin brennur.

Sjá einnig hér hér r, hér og hér.